Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

553. fundur 21. ágúst 2015 kl. 13:00 - 13:10 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Jaðar - Golfklúbbur Akureyrar - æfinga- og geymsluhús

Málsnúmer 2015070091Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. júlí 2015 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Golfklúbbs Akureyrar, kt. 580169-7169, sækir um byggingarleyfi fyrir æfinga- og geymsluhúsi með lnr. 150071 að Jaðri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar teikningar 15. júlí 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

2.Höfðahlíð 19-23 - umsókn um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu

Málsnúmer 2015080030Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. júlí 2015 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Trésmiðju Ásgríms Magnússonar ehf., kt. 410604-3889, sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 19-23 við Höfðahlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Tryggvabraut 22 - umsókn um byggingarleyfi - Breytingar inni 2. og 3. hæð

Málsnúmer 2013070002Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. ágúst 2015 þar sem Davíð Kristinsson f.h. DK fasteigna ehf., kt. 540411-0690, sækir um breytingar á notkun á vesturhluta 2. hæðar á Tryggvabraut 22. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar teikningar 17. ágúst 2015 og umsagnir vinnu- og heilbrigðiseftirlits.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

4.Ránargata 2 - umsókn um breytingu á skráningu

Málsnúmer 2014060034Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. ágúst 2015 þar sem Sigtryggur Veigar Herbertsson sækir um breytingu á skráningu húss nr. 2 við Ránargötu, þar sem óskað er eftir að húsið verið aðgreint í tvær íbúðir í stað einnar.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið og felur verkefnastjóra fasteignaskráningar að tilkynna breytinguna til Þjóðskrár.

5.Kjarnagata 39 (49-53) - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2015080055Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. ágúst 2015 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 39 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 13:10.