Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

550. fundur 23. júlí 2015 kl. 13:00 - 13:45 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Kaupvangsstræti 21 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014050219Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. júlí 2015 þar sem Almar Alfreðsson og Heiða B. Vilhjálmsdóttir sækja um byggingarleyfi vegna breytinga við Kaupvangsstræti 21. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Byggðavegur 91 - byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer BN070279Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. júlí 2015 þar sem Bergur Steingrímsson f.h. Stórverks ehf., kt. 530400-3790, sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 91 við Byggðaveg. Meðfylgjandi er teikning eftir Berg Steingrímsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Tekið er fram að ljósop björgunarops glugga í nýju herbergi í kjallara skal vera í samræmi við gr. 9.5.5. byggingarreglugerðar.

3.Jaðar - Golfklúbbur Akureyrar - æfinga- og geymsluhúsi

Málsnúmer 2015070091Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. júlí 2015 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Golfklúbbs Akureyrar, kt. 580169-7169, sækir um byggingarleyfi fyrir æfinga- og geymsluhúsi með lnr. 150071 að Jaðri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Lækjargata 9a - takmarkað byggingarleyfi

Málsnúmer 2014110175Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. júlí 2015 þar sem Jón Kristján Ólason sækir um takmarkað byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 9a við Lækjargötu.
Skipulagsstjóri getur ekki orðið við erindinu þar sem byggingarstjóra og iðnmeistara vantar á verkið, auk þess sem sérteikningar vantar af frágangi þaks, sökkul- og öðrum sérteikningum af nýrri viðbyggingu.

Fundi slitið - kl. 13:45.