Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

530. fundur 05. mars 2015 kl. 13:00 - 13:50 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Glerárgata 36 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2013060155Vakta málsnúmer

Þann 13. júní 2013 sótti Sigurður Einarsson f.h. Bílasölunnar Bílaríkis ehf, kt. 420190-2209, um skammtímaleyfi til þess að setja niður sumarhús við lóð nr. 36 við Glerárgötu.

Þann 27. febrúar 2015 sækir Sigurður um endunýjun á stöðuleyfinu.
Skipulagsstjóri frestar erindinu þar sem rökstuðningur fyrir beiðninni og samþykki lóðarhafa liggur ekki fyrir. Frestur til að skila inn umbeðnum gögnum er gefinn til 16. mars 2015.

2.Rángárvellir 150126 - Lóðarleigusamningur

Málsnúmer 2015030021Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. mars 2015 þar sem Ingvar Christiansen f.h. Landsvirkjunar, kt. 420269-1299, óskar eftir að gerður verði lóðarleigusamningur fyrir lóð að Rangárvöllum, landnr. 150126.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið og felur lóðarskrárritara að gefa út lóðarsamning.

3.Hverfisnefnd Oddeyrar - fundargerðir 2015

Málsnúmer 2015010103Vakta málsnúmer

Bæjarráð vísaði á fundi sínum þann 5. febrúar 2015 6. lið í fundargerð 57. fundar hverfisnefndar Oddeyrar, dagsett 27. janúar 2015, til skipulagsdeildar.

Þar segir:

Hverfisnefnd vill gera athugasemd við fyrirhugaða breytingu Norðurgötu 43 í gistiheimili.

Hljóta þurfi að sækja um leyfi fyrir breyttri notkun húsnæðis og slíkt eigi að fara í grenndarkynningu. Nefndin telur rétt að gjalda varhug við gistiheimilavæðingu inni í

íbúðarhverfum og telur að þar þurfi að spyrna við fótum.
Bent er á að í þessu tilfelli er um að ræða einbýlishús þar sem skipulagsstjóri veitti jákvæða umsögn um útleigu hússins í heild sinni og sýslumaður veitti síðan leyfi fyrir. Ekki er um breytta notkun hússins að ræða.


4.Bakkahlíð 35 - umsókn um garðhús

Málsnúmer 2015020167Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. febrúar 2015 þar sem Dariusz Zurawski sækir um leyfi fyrir garðskúr á lóð nr. 35 við Bakkahlíð. Meðfylgjandi er uppdráttur af skúrnum.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Glerá 2 - Hlíðarfjallsvegur 17 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011030103Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. febrúar 2015 þar sem Friðrik Friðriksson f.h. Hrafnkels Sigryggsson sækir um breytingar á eldvarnarmerkingum í húsi nr. 2 við Glerá, landnr. 146927. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Friðrik Friðriksson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Ekki er um breytingu á útliti eða formi hússins að ræða.

6.Geislagata 12 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014060009Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. febrúar 2015 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Hringabergs ehf., kt. 480607-0900, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 12 við Geislagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri hafnar breytingunni þar sem snyrting fyrir hreyfihamlaða stenst ekki ákvæði byggingarreglugerðar um algilda hönnun.

7.Borgargil 1 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013070021Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. mars 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, leggur inn reyndarteikningar með breytingum innan húss af húsi nr. 1 við Borgargil. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:50.