Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

521. fundur 11. desember 2014 kl. 13:00 - 15:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Hjallatún 1-11 - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi

Málsnúmer BN060759Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. desember 2014 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Trétaks ehf., kt 551087-1239, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsinu Hjallatúni 1-11. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Sporatún 21-29 - breyting inni

Málsnúmer BN060524Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. desember 2014 þar sem Magnús Guðjónsson f.h. Fjölnis hf., kt. 530289-2069, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Sporatúni 21-29. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Þingvallastræti 36 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2014100162Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. desember 2014 þar sem Hörður Sverrisson sækir um leyfi fyrir garðskúr við Þingvallastræti 36. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem staðsetning garðskúrsins skapar brunahættu vegna nálægðar gagnvart núverandi íbúðarhúsi á lóðinni.

Fundi slitið - kl. 15:00.