Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

483. fundur 06. mars 2014 kl. 13:30 - 15:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra
  • Ólafur Jakobsson
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson
Dagskrá

1.Hólabraut 13 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss

Málsnúmer 2014020175Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. febrúar 2014 þar sem Sigrún Gunnarsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss og starfsleyfi fyrir hár- og snyrtistofu í húsi nr. 13 við Hólabraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Guðbjörgu Söndru Gunnarsdóttur.
Innkomnar teikningar og samþykki meðeiganda 4. mars 2014.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Óseyri 2 - umsókn um stöðuleyfi fyrir gáma

Málsnúmer 2014020225Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. febrúar 2014 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Finns ehf., kt. 470403-2680, sækir um stöðuleyfi fyrir fjóra gáma á lóð nr. 2 við Óseyri. Meðfylgjandi er teikning.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar erindinu þar sem samþykki meðeigenda lóðar, upplýsingar um notkun gámanna ásamt rökstuðning fyrir þörf þeirra vantar.

3.Skipagata 14 - umsókn um byggingarleyfi fyrir glugga

Málsnúmer 2014030015Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. mars 2014 þar sem Jón Ingi Björnsson f.h. EFF 1 ehf., kt. 701211-0650, sækir um byggingarleyfi fyrir gluggum á vesturhlið 1. hæðar á húsi nr. 14 við Skipagötu. Meðfylgjandi eru gátlisti, samþykki meðeigenda og teikningar eftir Sigurð Halldórsson.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið með þeim fyrirvara sem fram kemur á útlisteikningu vesturhliðar.

4.Stekkjartún 2 - umsókn um leyfi fyrir breytingum á hurð

Málsnúmer 2013100193Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. október 2013 þar sem Sigurgeir Arngrímsson sækir um breytingar á húsi nr. 2 við Stekkjartún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Innkomnar teikningar 28. febrúar 2014.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Strandgata 49 - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 2014020204Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. febrúar 2014 þar sem Heiðar Heiðarsson f.h. HeiðGuðByggis ehf., kt. 610711-0570, sækir um stöðuleyfi fyrir gám á lóð nr. 49 við Strandgötu. Gámurinn er nýttur fyrir geymslu á byggingarefni og er notaður sem slíkur á byggingarvinnustöðum fyrirtækisins. Meðfylgjandi er teikning og samþykki lóðareiganda.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar erindinu þar sem samþykki meðeigenda í matshluta 02 vantar.

6.Þingvallastræti 10 - umsókn um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu

Málsnúmer 2014030002Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. febrúar 2014 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Þorps ehf., kt. 420206-2080, sækir um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu við hús nr. 10 við Þingvallastræti. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Þröst Sigurðsson.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Geislagata 12 - fyrirspurn um gistiskála

Málsnúmer 2014030022Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. mars 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. Verkmax hf., kt. 610999-2129, sendir inn fyrirspurn um gistiskála í húsi nr. 12 við Geislagötu. Einnig er óskað eftir undanþágu frá algildri hönnun. Meðfylgjandi er teikning eftir Harald Árnason.

Staðgengill skipulagsstjóra tekur jákvætt í erindið enda uppfylli breytingin kröfur byggingarreglugerðar um slíkt húsnæði m.a. hvað varðar algilda hönnun og hljóðvarnir.

8.Hvannavellir 12 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2013090023Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. febrúar 2014 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Ísam ehf., kt. 660169-1729, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir viðbyggingu við hús nr. 12 við Hvannavelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

9.Tryggvabraut 5 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer BN100073Vakta málsnúmer

Innkomin raunteikning 24. febrúar frá Hauki Haraldssyni vegna breytinga á afgreiðslu Landflutninga, Tryggvabraut 5.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 15:30.