Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

477. fundur 23. janúar 2014 kl. 13:00 - 15:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Daggarlundur 10 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014010057Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. janúar 2014 þar sem Logi Már Einarsson f.h. BB bygginga ehf., kt. 550501-2280, sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 10 við Daggarlund. Meðfylgjandi er gátlisti, tilkynning um hönnunarstjóra og teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Innkomnar teikningar 21. janúar 2014.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Fjölnisgata 1a - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013120008Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 13. janúar 2014 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Hringbergs ehf., kt. 480607-0900, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 1a við Fjölnisgötu. Meðfylgjandi er teikning eftir Harald S. Árnason.
Innkomnar teikningar 20. janúar 2014. Óskað er eftir undanþágu frá algildri hönnun
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Glerárgata 32 - umsókn um stöðuleyfi fyrir gáma

Málsnúmer 2014010266Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. janúar 2014 þar sem Jón F. Ólafsson f.h. Ljósgjafans ehf., kt. 561105-0490, sækir um stöðuleyfi fyrir þrjá gáma við hús nr. 32 við Glerárgötu. Meðfylgjandi er teikning.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Hamrar 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014010237Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. janúar 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi fyrir þjónustuhúsi nr. 3 að Hömrum. Meðfylgjandi eru tilkynning um hönnunarstjóra og teikningar eftir Harald Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Laufásgata 8 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2012080006Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. desember 2013 þar sem Auður Skúladóttir óskar eftir framlengingu á stöðuleyfi fyrir gamalt hús á lóðinni Laufásgötu 8.

Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem rökstuðningur fyrir ósk um framlengingu hefur ekki borist.

6.Óseyri 5 - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 2014010190Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. janúar 2014 þar sem Hafþór Hermannsson sækir um stöðuleyfi fyrir gám við hús nr. 5 við Óseyri. Meðfylgjandi eru samþykki meðeigenda, teikning og mynd.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til eins árs.

7.Óseyri 5 - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 2014010191Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. janúar 2014 þar sem Sigurgísli Sveinbjörnsson f.h. Kárhólma ehf., kt. 700404-6330, sækir um stöðuleyfi fyrir gám við hús nr. 5 við Óseyri. Meðfylgjandi eru samþykki meðeigenda, teikning og mynd.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til eins árs.


8.Sandgerðisbót - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 2014010172Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. janúar 2014 þar sem Skarphéðinn Ásbjörnsson sækir um stöðuleyfi fyrir gám á hafnarsvæði í Sandgerðisbót. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem ekki er heimilt að vera með gáma utan lóðar.

9.Þórsstígur 4 - umsókn um breytingar á norður- og miðsal og á bílastæði

Málsnúmer 2012070009Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. september 2013 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Hölds ehf., kt. 651174-0239, sækir um breytingu á áður samþykktum teikningum af viðbyggingu og breytingum innanhúss í Þórsstíg 4. Innkomnar teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Innkomnar teikningar 21. janúar 2014.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til bæði fyrri og nýrra athugasemda á fylgiblaði.

10.Skipagata 6 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á 2. hæð

Málsnúmer 2014010186Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. janúar 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. Gistingar Akureyri ehf., kt. 710713-1110, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 2. hæð í húsi nr. 6 við Skipagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason, gátlisti og tilkynning um hönnunarstjóra.
Innkomnar teikningar 23. janúar 2014.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

11.Hamratún 8-10 - umsókn um graftrarleyfi

Málsnúmer 2014010283Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. janúar 2014 þar sem Björgvin Smári Jónsson f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um graftrarleyfi fyrir húsunum nr. 8 og 10 við Hamratún. Meðfylgjandi er teikning eftir Anton Örn Brynjarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir jarðvegsskipti fyrir húsin og bílastæði í samræmi við samþykkt deiliskipulag. 

Fundi slitið - kl. 15:00.