Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

473. fundur 11. desember 2013 kl. 13:00 - 13:40 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
  • Stefanía Sigmundsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Súluvegur landnr. 149595 - umsókn um samþykki á reyndarteikningum

Málsnúmer 2013120043Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. desember 2013 þar sem Hjörtur Narfason f.h. HGH verks ehf., kt. 540510-0400, sækir um samþykki á reyndarteikningum með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á húsnæði við Súluveg lnr. 149595. Meðfylgjandi eru gátlisti, tilkynning um hönnunarstjóra og teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Hafnarstræti - umsókn um stöðuleyfi pylsuvagna

Málsnúmer 2013120059Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. desember 2013 þar sem Arnar Þór Þorsteinsson f.h. GA Samvirkni ehf., kt. 630608-0740, sækir um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir pylsuvagna við Sundlaug Akureyrar og Hafnarstræti fyrir árið 2014. Einnig er óskað eftir leyfi fyrir pylsuvagn á Ráðhústorgi innan reits 2.4 fyrir árið 2014. Meðfylgjandi er afrit af starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og leyfi frá Fasteignum Akureyrarbæjar.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi fyrir vagnana til eins árs.

Fundi slitið - kl. 13:40.