Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

466. fundur 23. október 2013 kl. 13:00 - 14:15 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Stekkjartún 2 - umsókn um leyfi fyrir breytingum á hurð

Málsnúmer 2013100193Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. október 2013 þar sem Sigurgeir Arngrímsson sækir um breytingar á húsi nr. 2 við Stekkjartún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Súluvegur 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir áfyllingarstöð

Málsnúmer 2013100078Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. október 2013 þar sem Ágúst Torfi Hauksson f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir metan áfyllingarstöð á lóð nr. 2 við Súluveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svein Valdimarsson.
Innkomnar teikningar 18. október 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Umsækjandi ber kostnað af færslu lagna, sem kvaðir eru um á lóðinni, ef þörf verður á.

3.Borgargil 1 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013070021Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. október 2013 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Borgargili 1. Meðfylgjandi eru brunahönnun og teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Innkomnar teikningar 17. október 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Tjarnartún 31 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011110026Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. október 2013 þar sem Gunnar Þórarinsson sækir um breytingar á húsi nr. 31 við Tjarnartún. Meðfylgjandi er teikning eftir Svein Valdimarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:15.