Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

464. fundur 09. október 2013 kl. 13:00 - 14:25 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Eyjafjarðarbraut - Flugsafn - reyndarteikningar

Málsnúmer BN051001Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. október 2013 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Flugsafns Íslands, kt. 650599-2099, leggur inn reyndarteikningar af Flugsafninu við Eyjarfjarðarbraut, lnr. 209043.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

2.Fjölnisgata 6 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013050188Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. maí 2013 þar sem Gunnar Björn Þórhallsson f.h. Bjarkarness ehf., kt. 671107-0710, sækir um byggingarleyfi fyrir milligólfi í bili B og viðbyggingu við bil C í Fjölnisgötu 6. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar teikningar 2. október 2013.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Goðanes 4, ehl 0111 - umsókn um breytingu á áður samþykktum teikningum

Málsnúmer 2013100050Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. september 2013 og móttekið 4. október 2013 þar sem Kári Magnússon f.h. Benna Blikk ehf., kt. 470208-0900, sækir um breytingu á áður samþykktum teikningum, eignarhluta 0111. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hauk Haraldsson.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Goðanes 8-10 - umsókn um breytingar á innra skipulagi

Málsnúmer 2013090259Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. september 2013 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson f.h. Manna ehf., kt. 550601-3620, sækir um leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í hluta 0115 í Goðanesi 8-10. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar teikningar 2. október 2013.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

5.Hólabraut 20 - umsókn um breytingu á þaki

Málsnúmer 2013080063Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. ágúst 2013 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Hrafns Stefánssonar sækir um leyfi til að breyta þaki á húsi nr. 20 við Hólabraut. Innkomnar teikningar eftir Hauk Haraldsson þann 2. október 2013.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

6.Súluvegur 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir áfyllingarstöð

Málsnúmer 2013100078Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. október 2013 þar sem Ágúst Torfi Hauksson f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir metan áfyllingarstöð á lóð nr. 2 við Súluveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svein Valdimarsson.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Viðjulundur 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013040216Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. apríl 2013 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Rauða Krossins á Akureyri, kt. 620780-3169, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsinu Viðjulundi 2. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Ingólf Guðmundsson. Innkomin teikning 4. október 2013.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

8.Skipagata 14 - umsókn um yfirferð á reyndarteikningu 2. hæð

Málsnúmer 2012030083Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 1. október 2013 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Einingar Iðju, kt. 570599-2599, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af innra skipulagi á 2. hæð að Skipagötu 14. Meðfylgjandi er teikning og gátlisti eftir Ágúst Hafsteinsson. Innkomnar teikningar og samþykki meðeigenda þann 9. október 2013.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið með fyrirvara um samþykki meðeigenda á 2. hæð.

Fundi slitið - kl. 14:25.