Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

437. fundur 20. mars 2013 kl. 13:00 - 14:20 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Ólafur Jakobsson
Dagskrá

1.Furuvellir 15 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013020260Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. febrúar 2013 þar sem Ingunn Helga Hafstað f.h. Bílanausts ehf., kt. 411112-0390, sækir um leyfi til að breyta húsi nr. 15 við Furuvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ingunni Helgu Hafstað.
Innkomnar teikningar 14. mars 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Holtagata 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu

Málsnúmer 2012110092Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2012 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Sigmundar Kristbergs Magnússonar sækir um byggingarleyfi fyrir bílageymslu við Holtagötu 1. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og teikningar eftir Harald Árnason.
Innkomnar teikningar 13. mars 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Kjarnagata 31 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013030066Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2013 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi númer 31 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Einnig er sótt um undanþágur í samræmi við grein 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður c.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Innkomnar teikningar 18. mars 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi ef byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út fyrir 15. apríl nk.

4.Kjarnagata 29 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer BN060292Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2013 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi númer 29 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Einnig er sótt um undanþágur í samræmi við grein 17.1.2., lið 1. í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður c.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Innkomnar teikningar 18. mars 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi ef byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út fyrir 15. apríl nk.

5.Stekkjartún 30 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011090075Vakta málsnúmer

Innkomnar reyndarteikningar af Stekkjartúni 30 eftir Fanneyju Hauksdóttur. Teikningar mótteknar 14. mars 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Hafnarstræti 106 - fyrirspurn um breytingar

Málsnúmer 2013030102Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. mars 2013 þar sem Brauns ehf., kt. 650213-1060, leggur inn fyrirspurn um breytingar á Hafnarstræti 106. Meðfylgjandi eru lýsingar á breytingum.

Breytingar á annarri hæð og gerð svala voru ekki framkvæmdar og eru því leyfi fyrir þeim fallin úr gildi. Sækja þarf að nýju um breytingar á húsinu með uppdráttum.

Skipulagsstjóri tekur jákvætt i að færa húsið til fyrra horfs. Bent skal á að með umsókn um breytingar þarf að fylgja umsögn Minjastofnunar.

7.Geislagata 10 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013030145Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. mars 2013 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Íss og kaffis ehf., kt. 580313-1240, sækir um leyfi til breytinga á Geislagötu 10. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson og samþykki nágranna.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

8.Ráðhústorg 3 - umsókn um að breyta 2. hæð í íbúð og gistiskála

Málsnúmer 2012070108Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. júlí 2012 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Áveitunnar ehf., kt. 560198-2219, sækir um að breyta skrifstofuhúsnæði á 2. hæð að Ráðhústorgi 3 í íbúð í suðurhluta og gistiskála í norðurhluta. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Innkomnar teikningar 7. nóvember 2012 og samþykki meðeigenda 19. mars 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

9.Lambi fjallaskáli, Glerárdal - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013030061Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2013 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Ferðafélags Akureyrar, kt. 670574-0249, sækir um byggingarleyfi fyrir "Lamba", fjallaskála á Glerárdal. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Innkomnar teikningar 19. mars 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

10.Austurvegur 46 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013030039Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. mars 2013 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Sigmars J. Friðbjörnssonar sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð númer 46 við Austurveg í Hrísey. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Einnig er sótt um undanþágur í samræmi við grein 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður c.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.1.3. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Innkomnar teikningar 19. mars 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi ef byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út fyrir 15. apríl nk.

Fundi slitið - kl. 14:20.