Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

431. fundur 06. febrúar 2013 kl. 13:00 - 14:20 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Dalsbraut 1 (Gleráreyrar 3)- 01 0105 - bifreiðaskoðun

Málsnúmer 2012090253Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. febrúar 2013 þar sem Svavar M. Sigurjónsson f.h. Hnetu ehf., kt. 501006-0250, leggur inn raunteikningar af skoðunarstöð við Dalsbraut 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svavar M. Sigurjónsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Dalsbraut 1, 02 0103 - reyndarteikningar

Málsnúmer 2011080106Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. febrúar 2013 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir f.h. Brynjars Helga Ásgeirssonar leggur inn reyndarteikningar af líkamsræktaraðstöð að Dalsbraut 1, rými 02-0103.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Hálönd, Hrímland 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012121166Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. desember 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi til að byggja frístundahús á lóð nr. 2 við Hrímland.
Einnig er óskað eftir undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.11.1. Umferðarleiðir hreyfihamlaðra.
2. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
3. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
4. Gr. 13.3.2 Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson.
Innkomnar teikningar 4. febrúar 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi ef byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út fyrir 15. apríl nk.

4.Hálönd, Hrímland 8 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012110033Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. október 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi til að byggja frístundahús á lóð nr. 8 við Hrímland.
Einnig er óskað eftir undanþágu skv. gr. 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.11.1. Umferðarleiðir hreyfihamlaðra.
2. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
3. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
4. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson.
Innkomnar teikningar 4. febrúar 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi ef byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út fyrir 15. apríl nk.

5.Höfðahlíð - Glerárskóli - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013010317Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. janúar 2013 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í Glerárskóla við Höfðahlíð. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

6.Njarðarnes 4 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2013010320Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. janúar 2013 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Áveitunnar ehf., kt. 560198-2219, sækir um breytingar innan- og utanhúss á eignarhluta 0104 við Njarðarnes 4. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Ósvör 2a - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013010280Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. janúar 2013 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Árness ehf., kt. 680803-2770, sækir um byggingarleyfi á lóð nr. 2a við Ósvör. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Rögnvald Harðarson. Einnig er óskað eftir undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður h.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2 Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

8.Þórunnarstræti 99 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012121197Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. desember 2012 þar sem Gísli Jón Kristinsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, óskar eftir leyfi vegna breytinga innan- og utanhúss á húsi nr. 99 við Þórunnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Gísla Jón Kristinsson.
Einnig er sótt um undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
U-gildi útveggja hússins uppfyllir ekki þær kröfur sem ný byggingarreglugerð gerir.
1. Gr. 13.3.3. Hér er vikið frá kröfum um leyfilegt hámark U-gilda útveggja og gólfs.
Innkomin umsögn Minjastofnunar dagsett 17. janúar 2013. Innkomin uppfærð brunahönnun dagsett 31. janúar 2013. Innkomnar aðalteikningar 5. febrúar 2013.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu þar til umsögn Minjastofnunar liggur fyrir um aðalteikningar, sem bárust 5. febrúar,  vegna breytingar á innra skipulagi og útliti hússins.

9.Höfðahlíð 12 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013020002Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. febrúar 2013 þar sem Guðjón Þór Tryggvason sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Höfðahlíð 12. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Finn Dagsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

10.Hafnarstræti 87-89 - umsókn um stækkun lóðar

Málsnúmer 2013020042Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. febrúar 2013 þar sem Fannar Ólafsson f.h. Kryptons ehf., kt. 640512-0320, sækir um stækkun lóðar við Hafnarstræti 87-89 í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Lóðaskrárritara er falið að gefa út yfirlýsingu vegna stækkunar lóðarinnar.

Fundi slitið - kl. 14:20.