Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

429. fundur 23. janúar 2013 kl. 13:00 - 13:40 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Hólmatún 5 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012090208Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. janúar 2013 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um leyfi til breytinga innan- og utanhúss á áður samþykktum teikningum af Hólmatúni 5. Meðfylgjandi eru hitatapsreikningar, gátlisti og teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Hólmatún 7 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012090209Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. janúar 2013 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um leyfi til breytinga innan- og utanhúss á áður samþykktum teikningum af Hólmatúni 7. Meðfylgjandi eru hitatapsreikningar, gátlisti og teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Hólmatún 9 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012090210Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. janúar 2013 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um leyfi til breytinga innan- og utanhúss á áður samþykktum teikningum af Hólmatúni 9. Meðfylgjandi eru hitatapsreikningar, gátlisti og teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Sómatún 29 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012120025Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. desember 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Sverris Gestssonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu nr. 29 við Sómatún. Meðfylgjandi gátlisti og teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Einnig er sótt um undanþágu frá byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður h. Varðandi hönnun umferðaleiða innan bygginga.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningar heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2 Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Innkomnar nýjar teikningar 17. janúar 2012.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu erindisins þar sem tilkynningu eigenda um hönnunarstjóra vantar.

5.Hverfisnefnd Holta- og Hlíðarhverfis - ýmis mál

Málsnúmer 2013010119Vakta málsnúmer

Berglind Rafnsdóttir, Brynja Sigurðardóttir, Óskar Ingi Sigurðsson og Helgi Stefánsson, fulltrúar hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis, mættu í viðtalstíma bæjarfulltrúa.

b) Deiliskipulag sem var lagt fram í vetur um hverfið var rætt og hvað hægt væri að gera til að fá fólk í hverfinu til að velta deiliskipulaginu betur fyrir sér. Hverfisnefnd hefur velt því fyrir sér hvort hægt væri að fá einhvern frá Akureyrarbæ til að halda erindi á aðalfundi í mars/apríl um deiliskipulag sem samþykkt hefur verið og hvaða breytingar á deiliskipulagi eru í bígerð hjá Akureyrarbæ fyrir hverfið.
Hverfisnefndinni bent á að ræða við Pétur Bolla Jóhannesson skipulagsstjóra.

b) Deiliskipulag suðurhluta Hlíðahverfis og deiliskipulag Stórholts og Lyngholts var nýlega samþykkt. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um deiliskipulagningu annarra svæða innan hverfisins á þessari stundu en markmið skipulagsnefndar og skipulagsdeildar er að öll hverfi bæjarins verði deiliskipulögð. 

Skipulagsstjóri er alltaf tilbúinn til skrafs og ráðagerða um skipulagsmálefni hverfa bæjarins ef óskað er eftir því.

6.Skipulags- og framkvæmdamál

Málsnúmer 2011030154Vakta málsnúmer

Eiður Guðni Matthíasson mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa 10. janúar 2013.
c) Spyr um hver verði framtíð Brálundar.
d) Spyr um hvernig bærinn ætli að bregðast við ónýttum grunnum í Naustahverfi.

Svar við fyrirspurn:

b) Gatan Brálundur er á samþykktu deiliskipulagi en tenging hennar við Miðhúsabraut í aðalskipulagi hefur verið felld úr gildi vegna niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um málið. Tengingunni hefur nú þegar verið lokað og ekki hafa verið teknar ákvarðanir um framhald málsins á þessari stundu.

d) Nánast allar óbyggðar lóðir í 1. og 2. hluta Naustahverfis eru í byggingu eða eru að fara af stað að undanskildum nokkrum grunnum sem eru í eigu fjármálafyrirtækja. Gera má ráð fyrir að hverfið verði fullklárað innan tveggja ára.

Fundi slitið - kl. 13:40.