Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

376. fundur 07. desember 2011 kl. 13:00 - 14:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Furuvellir 18 - umsókn um leyfi til að breyta útihurðum

Málsnúmer 2011120012Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. desember 2011 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Vífilfells ehf., kt. 470169-1419, sækir um að breyta hurðum á vesturhlið 1. hæðar að Furuvöllum 18. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

2.Hvannavellir 14 - umsókn um breytingar innanhúss - Laser tag

Málsnúmer 2011120015Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. desember 2011 þar sem Svanur Eiríksson f.h. Sunnu Svansdóttur sækir um byggingarleyfi til að innrétta Laser-tag leiksvæði í suðurhluta 1. hæðar að Hvannavöllum 14. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svan Eiríksson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

3.Höfðahlíð 8 - umsókn um breytingu á útitröppum

Málsnúmer 2011120016Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. desember 2011 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Hermanns Óskarssonar og Karínu Maríu Sveinbjörnsdóttur. leggur inn fyrirspurn um hvort leyfi fáist fyrir steinsteyptum útitröppum með tilheyrandi stoðveggjum og hurð út úr neðri hæð hússins nr. 8 við Höfðahlíð. Meðfylgjandi eru teikningar frá Kollgátu.

Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og mun afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.

4.Krókeyrarnöf 15 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011120018Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. desember 2011 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Ívans Brynjarssonar og Dagnýjar Birnisdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 15 við Krókeyrarnöf. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

5.Munkaþverárstræti 33 - umsókn um breytingar á skráningu

Málsnúmer 2011100027Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. nóvember 2011 þar sem Bjarni Reykjalín f.h. Menico ehf., kt. 510510-1270, sækir um leyfi til að breyta einbýlishúsi í tvær íbúðir að Munkaþverárstræti 33. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Bjarna Reykjalín.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Reykjasíða 8 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2011110079Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 15. nóvember 2011 þar sem Finnur Dagsson, Sóley Guðjónsdóttir, og Halldór Guðbjörnsson sækja um breytingar á kjallaragluggum á norð-austurhlið húss síns að Reykjasíðu 8. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Finn Dagsson. Innkomnar nýjar teikningar eftir Eirík Jónsson mótteknar 2. og 7. desember 2011.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Ægisnes 2 - umsókn um bráðabirgðaleyfi fyrir skrifstofugámi

Málsnúmer 2011110080Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. nóvember 2011 þar sem Ingi Friðbjörnsson f.h. Norðurbiks ehf., kt. 410704-2260, sækir um leyfi til að stækka bráðabirgðaaðstöðu að Ægisnesi 2 með því að setja skrifstofugám ofan á gám sem fyrir er með starfsmannaaðstöðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomin ný teikning 6. desember 2011. Innkomin ný teikning og umsögn vinnueftirlits þann 7. desember 2011.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi fyrir tveimur gámum til eins árs.

8.Helgamagrastræti 12 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2011110065Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. nóvember 2011 þar sem Birgir Wendel Steinþórsson sækir um að gera bílastæði við hús sitt að Helgamagrastræti 12. Innkomið bréf frá meðeiganda dagsett 30. nóvember 2011.
Skipulagsstjóri samþykkir bílastæði með innkeyrslu allt að 6 metrum. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Jafnframt greiði umsækjandi kostnað við úrtak úr kantsteinum/gangstétt.

9.Njarðarnes 14 - lóðarstækkun

Málsnúmer SN060024Vakta málsnúmer

Í nóvember 2006 tók skipulagnefnd jákvætt í erindi SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, þar sem óskað var eftir lóðarstækkun á lóðinni nr. 14 við Njarðarnes upp á u.þ.b. 708 fermetra. Erindinu var vísað til vinnslu í endurskoðun á deiliskipulagi A-áfanga Krossaneshaga sem þá var í vinnslu og var samþykkt í bæjarstjórn 6. mars 2007.

Skipulagsstjóri samþykkir lóðarstækkunina og lóðarskrárritara er falið að ganga frá nýjum lóðarsamningi.

10.Eyrarlandsvegur FSA - niðurrif á líkhúsi

Málsnúmer 2011120032Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. nóvember 2011 frá Alexander Pálssyni þar sem hann f.h. Sjúkrahússins á Akureyri, kt. 580269-2229, sækir um leyfi til að rífa líkhús á lóð sjúkrahússins við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi er samþykki eiganda hússins dagsett 1. desember 2011.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:30.