Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

360. fundur 17. ágúst 2011 kl. 13:00 - 13:37 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Kristján Þorsteinsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Jaðarsíða 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu

Málsnúmer 2011070090Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. júlí 2011 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Reynis Arnar Hannessonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 3 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar nýjar teikingar 10. ágúst 2011.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Strandgata 19 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2011070074Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. júlí 2011 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Ármanns Ólafssonar sækir um leyfi til að breyta verslunarhúsnæði á fyrstu hæð í hárgreiðslustofu að Strandgötu 19. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomin ný teikning 11. ágúst 2011.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Ægisgata 26 - umsókn um leyfi fyrir geymsluskúr

Málsnúmer 2011080030Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. ágúst 2011 þar sem Ármann Ketilsson f.h. Þroskahjálpar landssamtaka, kt. 521176-0409, sækir um að setja upp geymsluskúr við sambýlið við Ægistgötu 26. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:37.