Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

605. fundur 20. október 2016 kl. 13:00 - 14:40 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Kjarnagata 45 - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi

Málsnúmer BN060287Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. október 2016 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga ehf., kt. 490398-2529, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús nr. 45 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Krókeyrarnöf 21 - fyrirspurn

Málsnúmer BN070473Vakta málsnúmer

Fyrirspurn frá Ágústi Hafsteinssyni fyrir hönd Magnum opus ehf., kt. 470714-0850, þar sem spurst er fyrir um hvort heimild fengist til að klæða húsið nr. 21 við Krókeyrarnöf að utan með timburklæðningu að hluta sbr. meðfylgjandi fyrirspurnarteikningar. Einnig er spurst fyrir um leyfi fyrir fyrirhugaða sundlaug á lóðinni.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í fyrirspurn um klæðningu hússins með því skilyrði að verandaveggur verði með steinsteypuáferð. Fyrirspurn um sundlaug er vísað til skipulagsnefndar.

3.Ægisnes 3 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016080038Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. ágúst 2016 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Íslenska Gámafélagsins, kt. 470596-2289, sækir um byggingarleyfi fyrir bogaskemmu við Ægisnes 3. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 17. október 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Hvannavellir 4 - umsókn um sérmerkt stæði fyrir fatlaða

Málsnúmer 2016100137Vakta málsnúmer

Erindi frá Zakir Jóni Gazanov þar sem óskað er eftir að fá sérmerkt stæði fyrir fatlaða fyrir framan Hvannavelli 4.
Skipulagsstjóri frestar erindinu og óskar eftir staðfestingu á örorku og samþykki meðeigenda í húsinu.

5.Þórsstígur 2 - umsókn um skilti

Málsnúmer 2015120027Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. desember 2015 þar sem Höldur ehf., kt. 651174-0239, sækir um að setja upp ljósaskilti við Þórstíg 2. Meðfylgjandi er teikning. Innkomin ný teikning 14. október 2016.
Skipulagsstjóri frestar erindinu og vísar því til umsagnar skipulagsnefndar og framkvæmdadeildar.

6.Kringlumýri 9 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016090127Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. október 2016 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Tryggva Más Ingvarssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Kringlumýri 9. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Brattahlíð 6 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2016100094Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. október 2016 þar sem Pétur Arnar Unason sækir um bílastæði á lóð nr. 6 við Bröttuhlíð. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri synjar erindinu með hliðsjón af umferðaröryggi og þar sem tvöfalt stæði er fyrir hendi á lóðinni og ekki er sýnd þörf fyrir stærra stæði.

8.Þórsstígur 4 - umsókn um breytingar á norður- og miðsal og á bílastæði

Málsnúmer 2012070009Vakta málsnúmer

Innkomnar teikningar 27. september 2016 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Hölds ehf., kt. 651174-0239, leggur inn reyndarteikningar fyrir breytingum á húsinu Þórsstíg 4 í heild sinni. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 20. október 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

9.Grenivellir 22 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2016100122Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 17. október 2016 þar sem Eggert Rúnar Gunnarsson og Einar Hallur Sigurgeirsson sækja um að gera bílastæði innan lóðar og úrtök úr gangstéttum að Grenivöllum 22.
Skipulagsstjóri samþykkir 5 metra breitt stæði. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

10.Jaðarstún 17-19 - umsókn um breytingu

Málsnúmer 2016090140Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. október 2016 þar sem Haukur Ármannsson og Maron Björnsson sækja um breytingu á staðsetningu bílastæða við Jaðarstún 17-19 samkvæmt meðfylgjandi teikningu.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

11.Kringlumýri 31 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016100136Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. október 2016 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Gunnars Antons Jóhannssonar sækir um samþykki á íbúð á neðri hæð hússins Kringlumýri 31. Íbúðin hefur verið séreign skv. eignaskiptasamningi frá árinu 1965 og notuð til íbúðar síðan. Meðfylgjandi er teikning eftir Rögnvald Harðarson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

12.Austurbrú 6-8 - umsókn um byggingarleyfi fjölbýlis með bílakjallara

Málsnúmer 2016070042Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. júlí 2016 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Furuvalla 7 ehf., kt. 530212-0170, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu við Asturbrú 6-8. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 19. október 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:40.