Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

602. fundur 21. september 2016 kl. 13:00 - 14:45 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Undirhlíð 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýli

Málsnúmer 2015120128Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. júlí 2016 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á útliti og innréttingu 5. hæðar frá áður samþykktum teikningum fyrir Undirhlíð 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 13. september 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Ásatún 42 - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýli

Málsnúmer 2015050004Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. september 2016 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Ásatúns ehf., kt. 410914-1660, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjölbýlishúsi nr. 40 við Ásatún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Strandgata 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum inni

Málsnúmer 2015100056Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. maí 2016 þar sem Magnús Ingólfsson fyrir hönd Sjóvár, kt. 650909-1270, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús nr. 3 við Strandgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ó. Svavarsson. Innkomnar teikningar 14. september 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Helgamagrastræti 12 - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 2014110019Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. ágúst 2016 þar sem Guðbjörg Thorsen og Birgir Wendel sækja um áframhaldandi stöðuleyfi fyrir gám til geymslu á efni og vinnuaðstöðu til viðgerða á Helgamagrastræti 12. Meðfylgjandi er rökstuðningur fyrir stöðuleyfinu.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem ekki er veitt stöðuleyfi fyrir gáma sem nýttir eru fyrir vinnuaðstöðu. Fyrst var sótt um stöðuleyfi fyrir gáminn haustið 2014 með sömu rökum, en ekki verður séð að neitt hafi gerst í viðgerðum á húsinu síðustu tvö ár.

5.Hafnarstræti 71 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss

Málsnúmer 2015040240Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. september 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Morgunhana ehf., kt. 441105-0880, sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum af húsi nr. 71 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi er teikning eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Kringlumýri 9 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016090127Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. september 2016 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Tryggva Más Ingvarssonar sækir um breytingar á húsinu Kringlumýri 9. Meðfylgjandi er teikning eftir Rögnvald Harðarson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Glerárgata 32 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016070123Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. júlí 2016 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd G32 fasteigna ehf., kt. 590516-0140, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Glerárgötu 32. Innkomnar teikningar eftir Harald S. Árnason 21. september 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

8.Aðalstræti 4 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013020095Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. júlí 2016 þar sem Stefán Örn Stefánsson fyrir hönd Minjaverndar hf., kt. 700485-0139, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Aðalstræti nr. 4. Inkomnar teikningar eru eftir Stefán Örn Stefánsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

9.Gleráreyrar 1, læknastofur - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016040153Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. apríl 2016 þar sem Gunnar Bogi Borgarsson fyrir hönd EF1, kt. 681113-0960, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af 2. hæð á Gleráreyrum 1 og innrétta þar læknastofur. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gunnar Boga Borgarsson. Innkomnar teikningar 19. september 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

10.Daggarlundur 10 - umsókn um lóðarvegg

Málsnúmer 2016090126Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. september 2016 þar sem Steindór Kristinn Ragnarsson og Bjarney Sigurðardóttir sækja um að byggja 1,2 metra háan lóðarvegg á lóðarmörkum Daggarlundar 10 og aðliggjandi opnu svæði Akureyrarbæjar. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

11.Árstígur 6 - umsókn um byggingarleyfi fyrir loftræsirými

Málsnúmer 2013050065Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. september 2016 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd Ferro Zink hf., kt. 460289-1309, sækir um endurnýjun á byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Árstíg 6.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

12.Þórunnarstræti 83 - fyrirspurn

Málsnúmer 2016090096Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. september 2016 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Eyþórs Árna Sigurólasonar og Gísla Rúnars Magnússonar sendir inn fyrirspurn vegna breytinga á húsi nr. 83 við Þórunnarstræti.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í fyrirspurnina en sækja skal um byggingarleyfi með tilskildum gögnum.

13.Vörðutún 2 - umsókn um garðskúr

Málsnúmer 2016090124Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. september 2016 þar sem Pálmi Gauti Hjörleifsson sækir um leyfi fyrir garðskúr á lóð nr. 2 við Vörðutún. Meðfylgjandi eru myndir.
Skipulagsstjóri óskar eftir umsögn framkvæmdadeildar vegna sjónvegalengdar.

Fundi slitið - kl. 14:45.