Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

597. fundur 18. ágúst 2016 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Vörðutún 2 - umsókn um skjólvegg

Málsnúmer 2016050120Vakta málsnúmer

Erindi frá Pálma Gauta Hjörleifssyni þar sem hann óskar eftir leyfi til að byggja skjólvegg til hljóðvarnar 0,5 m frá gangstétt við Naustagötu og Vallartún samkvæmt meðfylgjandi teikningu eftir Loga Má Einarsson, móttekin 24. maí 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið með því skilyrði að veggurinn verði ekki hærri en 1,2-1,3 m og ekki nær gangstétt en 2 metra til að gefa rými fyrir snjóruðning.

2.Eyrarlandstún SAk B og C-álma - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2014060216Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. ágúst 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Sjúkrahússins á Akureyri, kt. 580269-2229, sækir um að gera nýja glugga á 3. hæð C-álmu við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Borgarsíða 25 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016080041Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. ágúst 2016 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Elíasar Gunnars Þorbjarnarsonar og Maiju Kaarinu Kalliokoski sækir um breytingar á húsi nr. 25 við Borgarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Kaupangur v/ Mýrarveg - umsókn um hringstiga milli hæða

Málsnúmer 2012060097Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. júní 2012 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Hymis ehf., kt. 621292-3589, sækir um leyfi til að setja hringstiga á milli rýma 0104 og 0203 ásamt innveggjatilfærslum í sömu rýmum. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Ágúst Hafsteinsson. Innkomnar teikningar 6. júní 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Dalsbraut - Lundarskóli, vestur álma - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016070086Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. júlí 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingar á vesturálmu Lundarskóla. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 11. ágúst 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Fiskitangi 4 - umsókn um farsímaloftnet

Málsnúmer 2016060100Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. júní 2016 þar sem Gautur Þorsteinsson fyrir hönd Fjarskipta hf., kt. 470905-1740, sækir um leyfi fyrir farsímaloftneti á húsi nr. 4 við Fiskitanga. Innkomnar teikningar 8. ágúst 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Glerárgata 32 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016070123Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. júlí 2016 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd G32 fasteigna ehf.,

kt. 590516-0140, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Glerárgötu 32. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:00.