Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

596. fundur 11. ágúst 2016 kl. 13:00 - 14:45 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Hrafnagilsstræti 14 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016080012Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. ágúst 2016 þar sem Logi Már Einarsson fyrir hönd Harðar Geirssonar sækir um leyfi til að reka nuddstofu á 1. hæð í húsi nr. 14 við Hrafnagilsstræti. Meðfylgjandi er teikning dagsett 28. júlí 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið tímabundið til fimm ára.

2.Holtaland 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016080013Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. ágúst 2016 þar sem Logi Már Einarsson fyrir hönd SS Byggis ehf.,

kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð nr. 2 við Holtaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Holtaland 4 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016080014Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. ágúst 2016 þar sem Logi Már Einarsson fyrir hönd SS Byggis ehf.

kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð nr. 4 við Holtaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Háhlíð 6-8 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2016070133Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. júlí 2016 þar sem Ragnar Níelsson fyrir hönd íbúa í Háhlíð 6-8 sækir um leyfi fyrir bílastæðum á lóðum 6 og 8 við Háhlíð. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

5.Tungusíða 16 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2016070135Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. júlí 2016 þar sem Þorgils Sævarsson sækir um bráðabirgðastæði/kerrustæði sem eingöngu verður notað á sumrin undir formbíla við hús sitt nr. 16 við Tungusíðu. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri getur ekki fallist á erindið þar sem þörf á bílastæði er ekki augljós.

6.Ásabyggð 18 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016080004Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. ágúst 2016 þar sem Sigurður Áki Eðvaldsson og Lísbet Gröndvaldt Björnsdóttir eru með fyrirspurn varðandi breytingar á hús nr. 18 við Ásabyggð. Meðfylgjandi eru myndir.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og bendir á að sækja þarf um byggingarleyfi með uppfærðum aðaluppdráttum.

7.Hamarstígur 16 - umsókn um garðhús

Málsnúmer 2016080017Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. ágúst 2016 þar sem Guðmundur Jón Axelsson sækir um garðhús á lóð nr. 16 við Hamarstíg. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og mynd.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið enda verði veggur hússins sem snýr að íbúðarhúsi EI60.

8.Þórunnarstræti 126 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016080016Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. ágúst 2016 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. GB bygg ehf.,

kt. 491208-0900, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 126 við Þórunnarstræti. Meðfylgjandi eru fyrirspurnarteikningar.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið. Form hússins er aðlagað að nokkrum húsum i götunni, en útlit hússins er vel leyst. Bent skal á að huga þarf betur að aðgengismálum fatlaðra og fleiri atriðum.

9.Kristjánshagi 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016070122Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. júlí 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Kristjánshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Einnig er sótt um leyfi til jarðvegsskipti.
Skipulagsstjóri samþykkir jarðvegsskipti innan byggingarreits á grundvelli deiliskipulags en vísar málinu að öðru leiti til skipulagsnefndar vegna breytinga á deiliskipulagi.

10.Skútagil 3 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2016080019Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. ágúst 2016 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Sveinmars Rafns Stefánssonar leggur inn fyrirspurn um breytingar á húsi nr. 3 við Skútagil. Meðfylgjandi eru teikningar og samþykki nágranna.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og bendir á að sækja þarf um byggingarleyfi fyrir breytingunni.

11.Ásatún 40 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2015030141Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. júlí 2016 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Ásatúns ehf.,

kt. 410914-1660, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Ásatún 40. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

12.Tryggvabraut 12 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2016010197Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. ágúst 2016 þar sem Logi Már Einarsson fyrir hönd Hölds ehf.,

kt. 651175-0239, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Tryggvabraut 12. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

13.Brattahlíð 2 - umsókn um stækkun á bílastæði

Málsnúmer 2016070125Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. júlí 2016 þar sem Hjalti Páll Þórarinsson sækir um stækkun á bílastæði og færslu á ljósastaur við Bröttuhlíð 2. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri samþykkir umbeðna stækkun á bílastæði. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

Fundi slitið - kl. 14:45.