Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

590. fundur 15. júní 2016 kl. 13:00 - 13:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Norðurgata 34 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016060057Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. júní 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Björgvins Sigurjónssonar og Rúnars Hjörleifssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Norðurgötu 34. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Flatasíða 5 - umsókn um garðhús

Málsnúmer 2016060059Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. júní 2016 þar sem Magnús Kristjánsson sækir um leyfi fyrir garðhúsi á lóð nr. 5 við Flötusíðu. Meðfylgjandi eru teikningar með samþykki nágranna.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Furulundur 37 - umsókn um garðskúr

Málsnúmer 2016050218Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. maí 2016 þar sem Þórmundur Skúlason sækir um leyfi fyrir garðskúr á lóð nr. 37 við Furulund. Meðfylgjandi eru myndir. Innkomnar teikningar 10. júní 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Geirþrúðarhagi 5 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016050207Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. maí 2016 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 5 við Geirþrúðarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar teikningar 10. júní 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Rangárvellir - umsókn um stöðuleyfi fyrir olíutank

Málsnúmer 2016060085Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. júní 2016 þar sem Jón Hermann Hermannsson f.h. Norðurorku, kt. 550978-0169, sækir um stöðuleyfi fyrir olíutanki á lóð Rangárvalla. Meðfylgjandi er teikning.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Jaðarstún 21-23 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2015120174Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. maí 2016 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Árveigar Aradóttur og Andra Þórs Bjarnasonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af nýbyggingu á lóð nr. 21-23 við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar teikningar 14. júní 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Hafnarstræti 106, borð fyrir framan verslun - umsókn

Málsnúmer 2016040161Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. apríl 2016 þar sem Aðalsteinn Árnason f.h. Drífu ehf., kt. 480173-0159, sækir um leyfi fyrir útiaðstöðu í sumar á gangstétt við Hafnarstræti 106. Innkomnar teikningar 14. júní 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið í samræmi við samþykkt Akureyrarkaupstaðar um verklagsreglur vegna nýtingar gangstétta- og göturýmis í göngugötu og Ráðhústorgi.

Fundi slitið - kl. 13:30.