Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

583. fundur 20. apríl 2016 kl. 13:00 - 13:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Óseyri 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016040158Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. apríl 2016 þar sem Valur Sigurðson f.h. Fasteignafélagsins Klappa ehf., kt. 670505-2350, sækir um breytingar á innréttingu fyrir verslun í norðvesturhluta 1. hæðar Óseyri 2. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Birkilundur 17, geymsluskúr - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016040156Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. apríl 2016 þar sem Karítas Pálsdóttir og Steinþór Árnason sækja um leyfi fyrir garðskúr á lóð nr. 17 við Birkilund. Meðfylgjandi er teikning.
Skipulagsstjóri samþykkir erindi en tekið skal fram að óheimilt er að tengja vatns-, rafmagns- eða hitalagnir í skúrinn.

3.Mýrarvegur 117- umsókn um leyfi fyrir svalalokun

Málsnúmer 2012060184Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. apríl 2016 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Mýrarvegs 117, húsfélags kt. 411106-0120, sækir um leyfi fyrir að breyta útliti svalalokana á íbúð 501 og 503 við Mýrarveg 117. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.

Fundi slitið - kl. 13:30.