Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

581. fundur 07. apríl 2016 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Austurvegur 24 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum og nýbyggingu

Málsnúmer 2016030155Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. mars 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Nónbils ehf., kt. 551107-1830, sækir um leyfi fyrir breytingum á húsinu Austurvegur 24 og nýbyggingu, mhl 02, á lóðinni. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 5. apríl 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Gleráreyrar 1, rými 46, Heimilistæki - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016030082Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. mars 2016 þar sem Egill Guðmundsson f.h. EF 1 hf., kt. 681113-0960, sækir um breytingar á rými nr. 46 á Glerártorgi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Egill Guðmundsson. Innkomnar teikningar 5. apríl 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Kjarnagata 33 (41-47) - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi

Málsnúmer BN060293Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. apríl 2016 þar sem Haraldur Árnason f.h. Trétaks ehf., kt. 551087-1239, sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum af húsi nr. 33 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Gleráreyrar 1 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016040046Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. apríl 2016 þar sem Egill Guðmundsson f.h. EF1 hf., kt. 681113-0960, sækir um breytingar í verslunarrými 21 á Glerártorgi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Egil Guðmundsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Eyrarlandsvegur 32 - Eyrarlandstún SAk B-álma - umsókn um byggingarleyfi þakhæðar

Málsnúmer 2016030070Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. mars 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Sjúkrahússins á Akureyri, kt. 580269-2229, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu ofan á álmu B, til fokheldis. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Innkomnar teikningar 31. mars 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Eyrarlandsvegur 32 - Eyrarlandstún SAk, A og C álma - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016030141Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. mars 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Sjúkrahússins á Akureyri, kt. 580269-2229, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir A og C-álmu við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Innkomnar teikningar 1. apríl 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Daggarlundur 6 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2016040045Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. apríl 2016 þar sem Margrét Svanlaugsdóttir og Guðmundur Viðar Guðmundsson sækja um lóð nr. 6 við Daggarlund. Meðfylgjandi er staðfesting viðskiptabanka.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.