Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

579. fundur 23. mars 2016 kl. 13:00 - 13:45 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Björn Jóhannsson
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Dagskrá

1.Austurvegur 24 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum og nýbyggingu

Málsnúmer 2016030155Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. mars 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Nónbils ehf., kt. 551107-1830, sækir um leyfi fyrir breytingum á húsinu Austurvegur 24 og nýbyggingu, mhl 02, á lóðinni. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Tryggvabraut 12 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016010197Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. febrúar 2016 þar sem Steingrímur Hannesson f.h. Hölds ehf., kt. 651174-0239, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu ofan á húsið við Tryggvabraut 12. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 13:45.