Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

578. fundur 17. mars 2016 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Austurbrú 10-12 - umsókn um prufuholur

Málsnúmer 2015080050Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. mars 2016 þar sem Steingrímur Pétursson f.h. Furuvalla 7 ehf., kt. 530212-0170, sækir um að grafa prufuholur á lóðunum nr. 2-12 við Austurbrú, skv. meðfylgjandi teikningu.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Staðsetning og frágangur skal gerður í samráði við byggingareftirlit.

2.Óseyri 9 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016010190Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. janúar 2016 þar sem Jónas V. Karlesson f.h. Rariks ohf. kt. 520269-2669, sækir um leyfi fyrir breytingum innanhúss við Óseyri 9. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jónas V. Karlesson. Innkomnar teikningar 26. janúar og 14. mars 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Eyrarlandstún, viðbygging - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016030070Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. mars 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Sjúkrahússins á Akureyri, kt. 580269-2229, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu ofan á álmu B, til fokheldis. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Eyrarlandsvegur 32 - Eyrarlandstún SAk, A og C álma - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016030141Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. mars 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Sjúkrahússins á Akureyri, kt. 580269-2229 sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir A og C-álmu við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Gleráreyrar 1, rými 46, Heimilistæki - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016030082Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. mars 2016 þar sem Egill Guðmundsson f.h. EF 1 hf., kt. 681113-0960, sækir um breytingar á rými nr. 46 á Glerártorgi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Egil Guðmundsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:00.