Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

567. fundur 11. desember 2015 kl. 13:00 - 13:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Brekkugata 5, Hrísey - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2015120026Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. desember 2015 þar sem Haukur Haraldsson f.h. Arnars Gústafssonar sækir um breytingar á húsi nr. 5 við Brekkugötu í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hauk Haraldsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Hrísalundur 5 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2015120082Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. desember 2015 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Reita I ehf., kt. 510907-0940, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Hrísalundi 5. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Flotbryggja við Hofsbót, umsókn um framkvæmdaleyfi.

Málsnúmer 2015120117Vakta málsnúmer

Pétur Ólafsson hafnarstjóri f.h. Hafnasamlags Norðurlands bs., kt. 650371-2919, sækir um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við nýja flotbryggju í Hofsbót ásamt því að taka upp núverandi grjótgarð í Hofsbót. Verktími yrði á tímabilinu mars til júní 2016. Sjá afstöðumynd þar sem ný flotbryggja er merkt A og grjótgarður merktur B.
Skipulagsstjóri vísar erindinu til skipulagsnefndar.

4.Skipagata 12 - umsókn um breytingar innanhúss

Málsnúmer 2015030270Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. mars 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Hymis ehf., kt. 621292-3589, sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 12 við Strandgötu. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson. Innkomin teikning 15. maí 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.