Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

561. fundur 28. október 2015 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Hrafnaland 6 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2014090295Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. október 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi fyrir kamínu í húsi nr. 6 við Hrafnaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 23. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

2.Hrafnaland 10 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2014110096Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. október 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi fyrir kamínu í húsi nr. 10 við Hrafnaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 26. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

3.Brekatún 2 - umsókn fjölgun á séreignageymslum

Málsnúmer 2015090091Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. september 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um að fjölga séreignageymslum í húsi nr. 2 við Brekatún. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson. Innkomin ný teikning 24. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

4.Álfabyggð 4 - umsókn um breytingu

Málsnúmer 2015010244Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. október 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Reglu Karmelsystra af hinu guðlega hjarta Jesú, kt. 410601-3380, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 4 við Álfabyggð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu og óskar eftir frekari upplýsingum.

5.Míla - framkvæmdaleyfi fyrir ljósveitu 2015

Málsnúmer 2015030238Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. október 2015 frá Ingimari Ólafssyni þar sem hann f.h. Mílu ehf., kt. 460207-1690, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 15. apríl 2015.
Um er að ræða framkvæmdir samkvæmt meðfylgjandi teikningu við:
1. AKUR Ljósveitan 2015. Áfangi 5 - svæði 9-10: Norður Brekka, Ásvegur-Hamarstígur-Byggðavegur, gröftur, ídráttur, tengiholur, tengiskápaskipti og brunnar.
Meðfylgjandi er staðfesting á samráði við framkvæmdadeild og Norðurorku.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalið verk. Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða.

Fundi slitið - kl. 14:00.