Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

558. fundur 09. október 2015 kl. 13:00 - 14:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra
  • Björn Jóhannsson
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson
Dagskrá

1.Krossanes 4 - umsókn um byggingarleyfi fyrir skyggni

Málsnúmer 2015100007Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. október 2015 þar sem Björgvin Smári Jónsson f.h. Becromal Iceland, kt. 590207-0120, sækir um byggingarleyfi fyrir skyggni yfir inngang á húsi nr. 4 við Krossanes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

2.Hrafnaland 6 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090295Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. október 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi fyrir kamínu í húsi nr. 6 við Hrafnaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Hrafnaland 10 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014110096Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. október 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi fyrir kamínu í húsi nr. 10 við Hrafnaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Þórunnarstræti 132 - umsókn leyfi fyrir breytingum á gluggum

Málsnúmer 2015090195Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. september 2015 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Eigenda Þórunnarstrætis 132, þar á meðal Áslaugar Felixdóttur sækir um leyfi fyrir breytingum á gluggum á húsi nr. 132 við Þórunnarstræti. Meðfylgjandi er teikning eftir Rögnvald Harðarson. Innkomin teikning 8. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

5.Míla - framkvæmdaleyfi fyrir ljósveitu 2015

Málsnúmer 2015030238Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. október 2015 frá Ingimari Ólafssyni þar sem hann f.h. Mílu ehf., kt. 460207-1690, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 15. apríl 2015.

Um er að ræða framkvæmdir samkvæmt meðfylgjandi teikningu við:

1. AKUR - Ljósveitan 2015, áfangi 5, svæði 1-7, Norður Brekka:

Þingvallastræti-Byggðavegur-Hamarstígur-Þórunnarstræti-Bjarkarstígur-Helgamagrastræti-Munkaþverárstræti-Krabbastígur-Brekkugata, ídráttur, tengiholur, tengiskápaskipti og nýr brunnur. Lögberggata-Oddeyrargata-Oddagata, lagnaskurður, tengiholur, ídráttur og nýr tengiskápur.

2. AKUR - Ljósveitan 2015, áfangi 5, svæði 8: Borgarbraut-Klettaborg, ídráttur og tengiskápsskipti.

3. AKUR - Ljósveitan 2015, áfangi 5: Möðruvallastræti, tengiholur.

Meðfylgjandi er staðfesting á samráði við framkvæmdadeild og Norðurorku.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalin verk. Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða.

6.Duggufjara 2 - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2015070004Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. júlí 2015 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson f.h. Leifs Kristjáns Þormóðssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 2 við Duggufjöru. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar teikningar 9. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

7.Kjarnalundur lnr. 150012 - byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss

Málsnúmer 2014120088Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. september 2015 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Kjarnalundar ehf., kt. 541114-0330, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Kjarnalundi, landnr. 150012. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

8.Spítalavegur 1 - umsókn um breytingar innanhúss

Málsnúmer 2015090264Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. september 2015 þar sem Jón Kristján Ólason sækir um breytingar innanhúss í húsi nr. 1 við Spítalaveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

9.Klettaborg 4 - byggingarleyfi fyrir glugga

Málsnúmer 2015090282Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. september 2015 þar sem Helgi Snorrason sækir um bæta við glugga á norðurhlið jarðhæðar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

10.Kjarnagata 31 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013030066Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. september 2015 þar sem Haraldur Árnason f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 31 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

11.Brekatún 2 - umsókn fjölgun á séreignageymslum

Málsnúmer 2015090091Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. september 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um að fjölga séreignageymslum í húsi nr. 2 við Brekatún. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:30.