Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

1003. fundur 06. febrúar 2025 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Krossanes 11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2025011640Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. janúar 2025 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Skútabergs ehf sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir uppsetningu sementstanka á lóð nr. 11 við Krossanes. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Strandgata 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2025011791Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. janúar 2025 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson f.h. AJS fasteigna ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 13 við Strandgötu. Innkomin gögn eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.