Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

917. fundur 25. maí 2023 kl. 10:30 - 11:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Týsnes 22 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023050365Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. maí 2023 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir geymsluhúsnæði á lóð nr. 22 við Týsnes. Innkomnar nýjar teikningar 23. maí 2023.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Þórunnarstræti 125 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023050962Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. maí 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Eyþórs Árna Sigurólasonar leggur inn reyndarteikningar vegna eignaskiptayfirlýsingar fyrir Þórunnarstræti 125. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnasonar.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 11:30.