Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

912. fundur 19. apríl 2023 kl. 13:00 - 13:45 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Kringlumýri 35 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2023040309Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. apríl 2023 þar sem Örn Þórisson sækir um úrtak úr kantsteini fyrir bílastæði á lóð nr. 35 við Kringlumýri.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 4 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.

2.Sandgerðisbót 2B - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023040460Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. apríl 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð nr. 2B við Sandgerðisbót. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Sandgerðisbót 2A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023040464Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14 apríl 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð 2A við Sandgerðisbót. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Hulduholt 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022090110Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. september 2022 þar sem Haraldur S. Árnason sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Hulduholt. Innkomnar nýjar teikningar 19. apríl 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Hofsbót 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022042331Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. apríl 2023 þar sem Ásgeir Ásgeirsson fyrir hönd Boxhus ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Hofsbót. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ásgeir Ásgeirsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:45.