Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

908. fundur 23. mars 2023 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráninga
Dagskrá

1.Hrísalundur 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023011213Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. janúar 2023 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Samkaupa sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss að Hrísalundi 5. Innkomnar nýjar teikningar 14. mars 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Hafnarstræti 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023020889Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. febrúar þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi í húsi nr. 16 við Hafnarstræti. Innkomnar nýjar teikningar 23. mars 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hvolf - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023010117Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. janúar 2023 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Helgu Bjargar Jónasardóttur sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir byggingu kúluhúss á steyptum kjallara. Innkomnar nýjar teikningar 22. mars 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.