Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

907. fundur 16. mars 2023 kl. 13:00 - 13:45 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Hafnarstræti 80 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023030432Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. mars 2023 þar sem Oddur Kristján Finnbjarnarson fyrir hönd Pollsins ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir íbúðarhóteli á lóð nr. 80 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Odd Kristján Finnbjörnsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Sjafnargata 1A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023030460Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. mars 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Sjafnargötu ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir verslunar-, lager- og skrifstofuhúsnæði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Dalsgerði 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023030540Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. mars 2023 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Húsfélagsins Dalgsgerði 7 sækir um byggingaráform og bygginarleyfi fyrir endurnýjun á þaki. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Geirþrúðarhagi 5 - fyrirspurn um byggingaráform

Málsnúmer 2023030596Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. mars 2023 þar sem Ragnhildur Þorgeirsdóttir leggur inn fyrirspurn varðandi byggingu sólskála í Geirþrúðarhaga 5, íbúð 103. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Friðrik Friðriksson og samþykki nágranna.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

5.Glerárgata 34 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild fyrir hjólageymslu

Málsnúmer 2022111340Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. nóvember 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd G34 fasteignir ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir hjólageymslu á lóð nr. 34 við Glerárgötu. Innkomnar nýjar teikningar 13. mars 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Gránufélagsgata 10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023030434Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. mars 2023 þar sem Selló ehf./Lárus H List sækir um byggingaráform og byggingarleyfi / breytta skráningu á húsnæði úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði á lóð nr. 10 við Gránufélagsgötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:45.