Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

898. fundur 12. janúar 2023 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Hvolf - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023010117Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. janúar 2023 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Helgu Bjargar Jónasardóttur sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu kúluhúss á steyptum kjallara. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Oddeyrartangi 149144 - umsókn um byggingarleyfi vegna frystivéla

Málsnúmer 2021120713Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. desember 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Útgerðarfélags Akureyringa sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 13 við Oddeyrartanga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Fiskitangi 4 - umsókn um byggingarleyfi fyrir hjólaskýli

Málsnúmer 2022010633Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. janúar 2023 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Útgerðarfélags Akureyringa sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af hjólaskýli við hús nr. 4 við Fiskitanga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Miðhúsavegur 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022120496Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. desember 2022 þar sem Almar Eggertsson fyrir hönd Verkvals ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði á lóð nr. 6 við Miðhúsaveg. Innkomnar nýjar teikningar 6. janúar 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.