Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

897. fundur 05. janúar 2023 kl. 13:00 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Gleráreyrar 1 (rými 49) - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Niðurrif

Málsnúmer 2022070294Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. desember 2022 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Samkaupa hf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugað er að færa Nettó í rými 49. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Óseyri 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022120976Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. desember 2022 þar sem Guðmundur Oddur Víðisson fyrir hönd Módelhúss ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 1 við Óseyri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Guðmund Odd Víðisson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Hafnarstræti 39 - umsókn um fjölgun íbúða

Málsnúmer 2022121117Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. desember 2022 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd 603 ehf. sækir um að fjölga fasteignum í húsi nr. 39 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að fjölga íbúðum úr tveimur í þrjár. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

4.Hulduholt 5-11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022100592Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. október 2022 þar sem Hugrún Þorsteinsdóttir fyrir hönd Modulus ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 5 við Hulduholt. Innkomnar nýjar teikningar 23. desember 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.