Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

887. fundur 27. október 2022 kl. 13:00 - 13:50 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Aðalstræti 13 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum utanhúss

Málsnúmer 2022091239Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. september 2022 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Stefáns Þórs Gestssonar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 13 við Aðalstræti. Um að ræða minniháttar útlitsbreytingar á austurhlið. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Týsnes 6A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir dreifistöð

Málsnúmer 2022091331Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. september 2022 þar sem Ragnar Bjarnason fyrir hönd Norðurorku hf. sækir um byggingarleyfi fyrir dreifistöð rafveitu á lóð nr. 6A við Týsnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Bjarnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Týsnes 22A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir dreifistöð

Málsnúmer 2022091332Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. september 2022 þar sem Ragnar Bjarnason fyrir hönd Norðurorku sækir um byggingarleyfi fyrir dreifistöð á lóð nr. 22A við Týsnes. Meðfylgjandi ertu teikningar eftir Ragnar Bjarnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Hulduholt 5-11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022100592Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. október 2022 þar sem Hugrún Þorsteinsdóttir fyrir hönd Modulus ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 5 við Hulduholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hugrúnu Þorsteinsdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Furuvellir 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021101269Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. október 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd A441 ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum breytingum innanhúss í húsi nr. 7 við Furuvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Norðurgata 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022090220Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. september 2022 þar sem Almar Eggertsson fyrir hönd Sólveigar Klöru Káradóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 16 við Norðurgötu. Fyrirhugað er að fjölga íbúðum í húsinu úr fjórum í fimm. Innkomnar nýjar teikningar 24. október 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

7.Hafnarstræti 102 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022061239Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. október 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. LF1 ehf., sækir um leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í húsi nr. 102 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 13:50.