Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

886. fundur 20. október 2022 kl. 13:00 - 13:50 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Austursíða 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir mathöll

Málsnúmer 2022050169Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. október 2022 þar sem Baldur Ólafur Svavarsson fyrir hönd Norðurtorgs ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir mathöll á lóð nr. 2 við Austursíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ólaf Svavarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Dvergaholt 5-9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022050528Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. október 2022 þar sem Haraldur S. Árnason sækir breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 5-9 við Dvergaholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:50.