Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

883. fundur 29. september 2022 kl. 13:00 - 13:40 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Móasíða 1B - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi

Málsnúmer 2021050993Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. september 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Lækjarsels ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 1B við Móasíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Þursaholt 2-12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022090484Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. september 2022 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Búfesti svf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 2-12 við Þursaholt. Innkomin ný gögn 28. september 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:40.