Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

877. fundur 18. ágúst 2022 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Hlíðarfjall, lyftuhús - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022080520Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. ágúst 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun neðra lyftuhúss í Hlíðarfjalli ásamt yfirbyggingu ofan á neðri endastöð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Hlíðargata 2 - fyrirspurn varðandi bílgeymslu

Málsnúmer 2022050316Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. maí 2022 þar sem Hallur Kristmundsson fyrir hönd Lækjarsels ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 2 við Hlíðargötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hall Kristmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Mýrarvegur Kaupangur - umsókn um byggingarleyfi, endurhæfingarstöð

Málsnúmer 2022050450Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. ágúst 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Eflingar sjúkraþjálfunar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Sunnuhlíð 12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022080151Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. ágúst 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. RA ehf., sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á lóð nr. 12 við Sunnuhlíð. Fyrirhugað er að stækka verslunarmiðstöðina til norðurs og breyta 2. hæð í rými fyrir heilsugæslu. Innkomnar nýjar teikningar 17. ágúst 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Dvergaholt 5-9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022050528Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. maí 2022 þar sem Haraldur Sigmar Árnason sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 5 við Dvergaholt. Innkomnar nýjar teikningar 11. ágúst 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Krossanes 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2022080681Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. ágúst 2022 þar sem Ragnar Bjarnason fyrir hönd Sementsverksmiðjunnar ehf. sækir um byggingarheimild fyrir breytingum atvinnuhúsnæðis á lóð nr. 1 við Krossanes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Bjarnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.