Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

876. fundur 12. ágúst 2022 kl. 08:30 - 09:15 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson
Dagskrá

1.Sunnuhlíð 12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022080151Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. ágúst 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. RA ehf., sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á lóð nr. 12 við Sunnuhlíð. Fyrirhugað er að stækka verslunarmiðstöðina til norðurs og breyta 2. hæð í rými fyrir heilsugæslu. Meðfylgjandi eru uppdrættir eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 09:15.