Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

875. fundur 04. ágúst 2022 kl. 13:00 - 13:15 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir verkefnastjóri
  • Katrín Rós Ívarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Klettaborg 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022070592Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. júlí 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Kistils Akureyri ehf., sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við bílgeymslu. Meðfylgjandi eru uppdrættir eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Langamýri 10 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2022080021Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. ágúst 2022 þar sem Ómar Þorsteinn Árnason sækir um leyfi til að útbúa bílastæði á lóð nr. 10 við Löngumýri. Fyrirhugað er að helluleggja hluta lóðar sem bílastæði fyrir tvo bíla og setja upp steyptan vegg við lóð sunnanmegin og burðarvegg austanmegin. Meðfylgjandi er samþykki lóðarhafa Löngumýri 8.

Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 3,5 metra úrtaki í kantstein sunnanmegin við hús með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum úr kantsteini og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.

Fundi slitið - kl. 13:15.