Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

858. fundur 31. mars 2022 kl. 11:00 - 11:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Hafnarstræti 23B - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölgun íbúða

Málsnúmer 2022030672Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. mars 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Grim apartments ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 23B við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að fjölga íbúðum úr tveimur í fjórar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Ystibær - Miðbær 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir gestahúsi

Málsnúmer 2022031012Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. mars 2022 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Sæmundar Sæmundssonar sækir um byggingarleyfi fyrir gestahús við Ystabæ - Miðbæ 2 í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

3.Ystibær - Miðbær 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsi

Málsnúmer 2022031064Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. mars 2022 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Skuggsjár sækir um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsi við Ystabæ - Miðbæ 3 í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

4.Ráðhústorg 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021110094Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. nóvember 2021 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Kasa fasteigna ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 1 við Ráðhústorg. Fyrirhugað er að breyta rými sem nú er skyndibitastaður í aðstöðu fyrir fasteignasölu. Innkomnar nýjar teikningar 23. mars 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Aðalstræti 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022030344Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. mars 2022 þar sem X 457 ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 3 við Aðalstræti. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi verslunar á 1. hæð. Innkomnar nýjar teikningar eftir Guðjón Þóri Sigfússon 28. mars 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 11:30.