Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

855. fundur 10. mars 2022 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Ægisgata 1 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2022021335Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. febrúar 2022 þar sem Skarphéðinn Reynisson sækir um úrtak úr kantsteini fyrir bílastæði við hús nr. 1 við Ægisgötu. Meðfylgjandi er mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með allt að 4 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.

2.Hulduholt 23 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022030212Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. mars 2022 þar sem Valbjörn Ingi Vilhjálmsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús á lóð nr. 23 við Hulduholt.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Norðurtangi 1 - umsókn um byggingarleyfi, starfsmannaaðstaða

Málsnúmer 2022010634Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. janúar 2022 þar sem Gunnar Stefán Larsen fyrir hönd Hampiðjunnar Ísland ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 1 við Norðurtanga. Fyrirhugað er að innrétta verslunarrými á jarðhæð og útbúa starfsmannaaðstöðu á annarri hæð. Brunavarnir verða skilgreindar að nýju. Innkomnar nýjar teikningar 7. mars 2022.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Ráðhústorg 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021110094Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. nóvember 2021 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Kasa fasteigna ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 1 við Ráðhústorg. Fyrirhugað er að breyta rými sem nú er skyndibitastaður í aðstöðu fyrir fasteignasölu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Óðinsnes 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021060028Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. febrúar 2022 frá Helga Má Halldórssyni þar sem hann fyrir hönd Smáragarðs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir þremur samsettum gámum staðsettum hjá húsi nr. 2 við Óðinsnes. Innkomnar nýjar teikningar 2. mars 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.