Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

854. fundur 02. mars 2022 kl. 13:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Hafnarstræti 93 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022021220Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. febrúar 2022 þar sem Jóhannes Þórðarson fyrir hönd Ríkiseigna sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 93 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jóhannes Þórðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Furuvellir 17 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020061077Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. febrúar 2022 þar sem Aðalsteinn Snorrason fyrir hönd Haga hf sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum húss nr. 17 við Furuvelli. Innkomnar nýjar teikningar 2. mars 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið.