Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

852. fundur 17. febrúar 2022 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Krossanes 4 - umsókn um byggingaráform vegna millilofts

Málsnúmer 2022020677Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. febrúar 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd TDK foil Iceland sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 4 við Krossanes. Fyrirhugað er að innrétta tæknirými og milliloft. Meðfylgjandi eru teikningar.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Matthíasarhagi 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021121214Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. desember 2021 þar sem Jón Magnús Halldórsson fyrir hönd Einars Guðmundssonar sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 6 við Matthíasarhaga. Innkomnar nýjar teikningar 17. febrúar 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Austurvegur 48 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021030825Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. febrúar 2022 þar sem Jóhannes Þórðarson fyrir hönd Isa Almosnino sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir frístundahús á lóð nr. 48 við Austurveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jóhannes Þórðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Óðinsnes 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021060028Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. febrúar 2022 frá Helga Má Halldórssyni þar sem hann fyrir hönd Smáragarðs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir þremur samsettum gámum staðsettum hjá húsi nr. 2 við Óðinsnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Helga Má Halldórsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 13:30.