Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

845. fundur 22. desember 2021 kl. 13:00 - 13:45 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Oddeyrartangi 149144 - umsókn um byggingarleyfi vegna frystivéla

Málsnúmer 2021120713Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. desember 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Útgerðarfélags Akureyringa sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi 5, 7, 8 og 13 við Oddeyrartanga, landnr. 149144. Fyrirhugað er að færa frystivélar úr húsi nr. 5 í hús 13 og rífa hluta léttra innveggja í húsum 7 og 8 og alla í húsi nr. 13. Sett verður hurð á austurhlið húss nr. 13. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Miðgarðakirkja Grímsey - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021120733Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. desember 2021 þar sem Hjörleifur Stefánsson fyrir hönd Sóknarnefndar Miðgarðakirkju sækir um byggingarleyfi fyrir kirkju í Grímsey, sama staðsetning og kirkjan sem brann í september á þessu ári. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hjörleif Stefánsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Hlíðargata 11 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breyttu innra skipulagi

Málsnúmer 2021100478Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. október 2021 þar sem Brynhildur Sólveigardóttir fyrir hönd Sigmars Ólafssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breytingu á innra skipulagi í rými 0102. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Brynhildi Sólveigardóttur. Innkomnar nýjar teikningar 16. desember 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:45.