Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

838. fundur 03. nóvember 2021 kl. 13:00 - 13:45 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Austursíða 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir spennistöð

Málsnúmer 2021081130Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. ágúst 2021 þar sem Baldur Ólafur Svavarsson fyrir hönd Norðurtorgs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir spennistöð á lóð nr. 2 við Austursíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ólaf Svavarsson. Innkomin ný gögn 2. nóvember 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Mánahlíð 12 - umsókn um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu

Málsnúmer 2021090072Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. september 2021 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Hreiðars Þórs Valtýssonar sækir um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu við hús nr. 12 við Mánahlíð. Bílgeymslan er á upprunalegum teikningum af húsinu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Skipulagsráð tók jákvætt í erindið á fundi 11. ágúst 2021 og samþykkti að grenndarkynna erindið. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hafnarstræti 90 - umsókn um byggingarleyfi fyrir veitingarekstur

Málsnúmer 2021090223Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. september 2021 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Arnfinns ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 90 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að opna veitingarekstur á fyrstu hæð hússins. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson. Innkomin ný gögn 26. október 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Nonnahagi 13 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021090937Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. september 2021 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Sverris Gestssonar sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 13 við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson. Innkomnar nýjar teikningar 27. október 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Furuvellir 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021101269Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. október 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd A441 ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 7 við Furuvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon. Innkomin ný gögn 2. nóvember 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Krossanes 7 - umsókn um stöðuleyfi fyrir malbikunarstöð

Málsnúmer 2021101842Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. október 2021 þar sem Colas Ísland hf. sækir um stöðuleyfi fyrir malbikunarstöð á lóð nr. 7 við Krossanes frá 25. október til 31. desember 2021. Meðfylgjandi er starfsleyfi og leigusamningur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

7.Jaðarsíða 13 - umsókn um byggingarleyfi, steyptur veggur

Málsnúmer 2021110085Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. nóvember 2021 þar sem Valdimar Heiðar Valsson sækir um byggingarleyfi fyrir stoðvegg við hús nr. 13 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og umhverfis- og mannvirkjasviðs, samþykki byggingarverkfræðings og grunnmynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

8.Ráðhústorg 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021110094Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. nóvember 2021 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Kasa fasteigna ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 1 við Ráðhústorg. Fyrirhugað er að breyta rými sem nú er skyndibitastaður í aðstöðu fyrir fasteignasölu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

9.Mýrarvegur 114 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2020100083Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. október 2020 þar sem Arnar Freyr Jónsson sækir um leyfi til að byggja 16 m² viðbyggingu við kjallara hússins nr. 114 við Mýrarveg. Meðfylgjandi er teikning eftir Anton Örn Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 27. október 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:45.