Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

829. fundur 02. september 2021 kl. 13:00 - 13:30 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Höfðahlíð leikskóli - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2020010175Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. janúar 2020 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum fyrir byggingu leikskóla á lóð Glerárskóla við Höfðahlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomar nýjar teikningar 1. september 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Gránufélagsgata 51 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021041271Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. apríl 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd VN Fasteigna ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 51 við Gránufélagsgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 25. ágúst 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Vindmyllur - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021080835Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. ágúst 2021 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir vindmyllum og gámaskúr með stjórnbúnaði í Grímsey.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Austursíða 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir spennistöð

Málsnúmer 2021081130Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. ágúst 2021 þar sem Baldur Ólafur Svavarsson fyrir hönd Norðurtorgs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir spennistöð á lóð nr. 2 við Austursíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ólaf Svavarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Glerárgata 28 - umsókn um byggingarleyfi, dansstúdio

Málsnúmer 2021081147Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. ágúst 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Sjófugls ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 2. hæð í húsi nr. 28 við Glerárgötu. Fyrirhugað er að opna dansstúdíó. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

6.Móasíða 1A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021081231Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. ágúst 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Unique Chillfresh Iceland ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 1A við Móasíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

7.Sómatún 29 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021090006Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. ágúst 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd BF Bygginga ehf. sækir um að hefja jarðvegsframkvæmdir fyrir raðhúsi á lóð nr. 29 við Sómatún. Meðfylgjandi eru tillöguteikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir heimild til jarðvegsskipta í byggingarreit hússins í samræmi við deiliskipulag.

8.Múli - umsókn um byggingarleyfi fyrir sólarsellum

Málsnúmer 2021090043Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. september 2021 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir uppsetningu á sólarsellum á lóðinni Múla í Grímsey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

9.Móasíða 1B - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi

Málsnúmer 2021050993Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. maí 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Unique Chillfresh Iceland ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 1B við Móasíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 27. ágúst 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.