Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

776. fundur 30. júlí 2020 kl. 13:00 - 13:05 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
  • Arnar Ólafsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Laxagata 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2017110107Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. nóvember 2017 þar sem Hermann Beck og Elísabet Karlsdóttir sækja um byggingarleyfi fyrir breytingu á húsi nr. 2 við Laxagötu. Sótt er um að breyta gluggum í kjallara, setja svalir og hurð á suðurenda í risi og útihurð á suðurenda kjallara. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Þorvald Jónsson. Innkomnar nýjar teikningar 12. júní 2020 eftir Þórir Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindi.

Fundi slitið - kl. 13:05.