Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

748. fundur 21. nóvember 2019 kl. 13:00 - 13:25 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Björn Jóhannsson staðgengill byggingarfulltrúa
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Gleráreyrar 1, rými 40 - umsókn um byggingarleyfi, Flying Tiger

Málsnúmer 2019110279Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. nóvember 2019 þar sem Svava Bragadóttir fyrir hönd EF1 hf., kt. 681113-0960, sækir um byggingarleyfi til að innrétta rými 40 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar fyrir verslun Flying Tiger. Meðfylgjandi er teikning eftir Svövu Bragadóttur.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.

2.Ægisgata 7 - umsókn um byggingarleyfi fyrir útigeymslu og breytingum

Málsnúmer 2019110234Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2019 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Magnúsar Þorleifssonar sækir um byggingarleyfi fyrir geymslubyggingu, geymslu á neðri hæð og útipalli við hús nr. 7 við Ægisgötu í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

3.Gleráreyrar 1, rými 47 - umsókn um byggingarleyfi, Kids Coolshop

Málsnúmer 2019110277Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. nóvember 2019 þar sem Svava Bragadóttir fyrir hönd EF1 hf., kt. 681113-0960, sækir um byggingarleyfi til að innrétta rými 47 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar fyrir verslun Kids Coolshop. Meðfylgjandi er teikning eftir Svövu Bragadóttur.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.

4.Norðurgata 3 - umsókn um leyfi til niðurrifs

Málsnúmer 2019110345Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. nóvember 2019 þar sem Garðar Smári Helgason, His ehf., kt. 540219-1250 og Ingibjörg María Ingvarsdóttir sækja um leyfi til niðurrifs húss nr. 3 við Norðurgötu vegna bruna íbúðarhússins.

Meðfylgjandi er umsögn Minjastofnunar Íslands, samþykki heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, með skilyrðum og Vinnueftirlits ríkisins.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkti áform um niðurrif 20. nóvember 2019, sem hér er fært til bókar. Frágangur á vettvangi verði samkvæmt útgefnu byggingarleyfi.

5.Þórunnarstræti 89 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum utanhúss

Málsnúmer 2015020109Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. febrúar 2015 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Kristveigar Óladóttur sækir um breytingar utanhúss á húsi nr. 89 við Þórunnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson. Innkomnar nýjar teikningar 14. nóvember 2019.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.

6.Nonnahagi 12-20 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2019110235Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2019 þar sem Kristinn Rúnar Victorsson fyrir hönd VA-verktaka ehf., kt. 660104-2910, sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 12-20 við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Óseyri 19 - umsókn um byggingarleyfi fyrir tækjageymslu með tengibyggingu

Málsnúmer 2019110207Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2019 þar sem Guðjón Þ. Sigfússon fyrir hönd Bjarna Hallgrímssonar sækir um byggingarleyfi fyrir tækjageymslu með tengibyggingu við eldra hús á lóð nr. 19 við Óseyri. Meðfylgjandi er teikning eftir Guðjón Þ. Sigfússon og umsagnir Minjastofnunar og eldvarnareftirlits.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 13:25.