Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

737. fundur 29. ágúst 2019 kl. 13:00 - 13:45 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Gránufélagsgata 4 - umsókn um breytingar á innra skipulagi

Málsnúmer 2017040047Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. ágúst 2019 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd RS fasteigna ehf., kt. 701213-0170, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í húsi nr. 4 við Gránufélagsgötu. Meðfylgjandi er teikning eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Rangárvellir 2 hús nr. 3 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2018120106Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. ágúst 2019 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 1-3 við Rangárvelli 2. Fyrirhugað er að færa mötuneytið milli húsanna. Meðfylgjandi er teikning eftir Fanneyju Hauksdóttur og brunahönnun Böðvars Tómassonar.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Geirþrúðarhagi 1 - fyrirspurn vegna jarðvegsskipta

Málsnúmer 2019080371Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. ágúst 2019 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Trétaks ehf., kt. 551087-1239, leggur inn fyrirspurn varðandi jarðvegsskipti á lóð nr. 1 við Geirþrúðarhaga. Fyrirhugað er að byggja þar fjölbýlishús. Meðfylgjandi er teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti á grundvelli fyrirliggjandi tillöguteikninga. Ekki er tekin afstaða til tillöguteikninganna að öðru leyti.

4.Hringteigur 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi til flutnings

Málsnúmer 2019080391Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. ágúst 2019 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson fyrir hönd Verkmenntaskólans á Akureyri, kt. 531083-0759, sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi til flutnings við Hringteig 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 13:45.