Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

736. fundur 22. ágúst 2019 kl. 13:00 - 13:45 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Strandgata 31 - umsókn um skilti

Málsnúmer 2019070130Vakta málsnúmer

Erindi í tölvupósti dagsettum 3. júlí 2019 frá Bjarna Gunnarssyni þar sem hann fyrir hönd Vesturkants ehf., kt. 541008-0630, sækir um leyfi til að setja upp skilti sem greinir frá fyrirtækjum í húsinu á lóðinni nr. 31 við Strandgötu.
Byggingarfulltrúi hafnar erindinu þar sem ekki liggur fyrir samþykki eigenda í Norðurgötu 2.

2.Goðanes 7 - fyrirspurn

Málsnúmer 2019080019Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. ágúst 2019 þar sem Haraldur Árnason fyrir hönd Akurbergs ehf., kt. 460804-2210, leggur inn fyrirspurn um byggingu húss á lóð nr. 7 við Goðanes, samkvæmt tillöguteikningum. Jafnframt er sótt um heimild til jarðvegsskipta. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 14. ágúst 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir jarðvegsskipti á grundvelli tillöguteikninga.

3.Tryggvabraut 24 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss

Málsnúmer 2019080278Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. ágúst 2019 þar sem Ragnar Fr. Guðmundsson fyrir hönd Efniviðar ehf., kt. 680704-2950, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 24 við Tryggvabraut. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 13:45.